Já margir segja að ég sé engill sem lent hefur í helvíti! gaman af því... En já þar sem ég var hálfpartin farin að skammast mín fyrir það að vera ekki komin með neitt nafn á drenginn minn þá er það loksins komið og kemur nafnið fram í skírninni þannig þið þurfið að bíða! sorry:)
En ég ákvað að skella hérna inn smá "kjaftæði" um óléttuna og fleira a.t.h það sem er innan svigans er þó satt!:)
*Stelpa getur ekki orðið ólétt í fyrsta sinn sem hún sefur hjá. (Stelpur geta raunar orðið óléttar án þess að hafa nokkurn tíma farið á túr!)
*Stelpa getur orðið ólétt í sundi. (Þó að litlu mennirnir séu einstaklega góðir sundmenn þá ná þeir nú ekki að synda langar vegalengdir utan líkamans. Hins vegar getur stelpa vel orðið ólétt ef hún hefur samfarir í sundlaug.)
*Maður getur fengið kynsjúkdóma af klósettum (Afar, afar ólíklegt ef ekki útilokað. Maður getur hins vegar fengið kynsjúkdóma á klósettum, en það er annað mál...)
*Stelpa getur ekki orðið ólétt ef hún sefur hjá á meðan hún er á túr. (Nibb, sorry. Það er nefnilega ekki satt og að sjálfsögðu smitast kynsjúkdómar óháð því hvort Rósa frænka er í heimsókn eða ekki. Smokkurinn hefur því 3 kosti í þessarri stöðu: hindrar getnað, ver gegn sjúkdómum og heldur tippinu hreinu...)
*Smokkurinn eyðileggur alla tilfinningu og strákurinn er miklu lengur að fá það. (Bíddu, hvenær varð það vandamál að strákar væru of lengi að fá það...? Smokkurinn minnkar að vísu tilfiningu, enda sumir markaðsettir sem slíkir, en þeir hafa ekki marktæk áhrif á lengd samfara.)
*Það að nota smokk er eins og að fara í stígvélum í fótabað. (Uuuu...nei. Það er miklu líkara því að vera í vöðlum í laxveiði, sérstaklega ef það geta verið píranafiskar í vatninu...)
No comments:
Post a Comment