February 26, 2007

Allt er gott sem endar vel...

já helgina var nett góð... míns fór að vinna á laugardaginn frá 8 til 5 og svo skellti maður sér í mat til dady, en hann Símon litli varð eftir hjá afa sínum og mamma nr. 1 skellti sér á djammið...;) sem byrjaði með nokkrum bjórum hjá Sylvíu mús og svo tók bærinn við í öllum sínum ljóma, en kvöldið endaði eitthvað skringilega hjá okkur þ.e.a.s ég týndist... like always!:/ þannig ég skellti mér uppí leigubíl og í partý þar sem einn yndislegur vinur minn beið eftir mér hehe;) og ég skemmti mér alveg konunglega þar:) svo var sunnudagurinn bara tekinn rólegur þar sem ég þurfti nú að fara í vinnu daginn eftir þ.e.a.s. í dag;) en já... vinnan er frábær tala nú ekki um HOTT gaura sem maður vinnur með...shit!! þannig það er ágætt að vera á lausu á svona stundum hehe:) en ég ætla nú ekki að detta út í eitthvað hott gaura tal þar sem það gæti orðið heil bók hjá mér þannig áður en ég missi mig hérna þá ætla ég að segja þetta OK:*


Love Sandra Bé:*

February 22, 2007

Be happy!

Þessi vika er búin að vera ÆÐI! bara skemmtileg... svo vildi ég bara lýsa hér með yfir (þar sem ákveðinn aðili hætti ekki að tala um að ég þyrfti að "finna" sjálfa mig) að ég er buin að finna sjálfa mig:) gaman! lífið er allt miklu betra og skemmtilegra núna:) jebb.... En já ég byrjaði að vinna í þessari viku, geggjað gaman í vinnuni:) en það er bara afþví ég er búin að "finna" sjálfa mig ;þ ofkors...svo er maður orðinn hörku massaður eftir ALLAR æfingarnar, hell jee;) svo verður helgin söm og vikan, bara skemmtileg:) maður verður nú að kíkja eitthvað á vinina svona annaðslagið hehe. En já ég ætla þá að brjóta minn edrú mánuð með að fá mér eitt hvítvínsglas + 10 :) svo verð ég bara að segja ykkur... alltaf þegar ég horfi á fótboltaleik frá byrjun þá spái ég fyrir um hver staðan verður í leikslok áður en leikurinn byrjar og viti menn ég hef alltaf rétt fyrir mér... ótrúlegt:) eins og t.d í gær þa spáði ég Liverpool sigri, tvö mörk gegn einu á móti barcelona og hvað haldið þið...me right;p en jæja ætla hætta þessu... fara gera eitthvað annað en að blogga!



love sandra Bé:*

February 18, 2007

KONUdagur!

Jæja ef ég er rétt tímastillt þá mun vera konudagurinn í dag:) bolludagurinn á morgun og öskudagurinn á miðvikudaginn... gaman, gaman;) En í tilefni af konudeginum þá bíst ég við því að allir karmenn séu heima að baka bollur fyrir morgundaginn;)

Svo var bara tekið því rólega um helgina... Vá! sem mun bara vera met hjá mér, ekkert djamm 4 helgar í röð :D maður er að taka sig á sko... þannig ég mun mæta hress og glöð til vinnu á morgun:)


En svo fyrir þá þ.e.a.s. sem fara ekki útí búð að kaupa bollur... þá er ég með eina uppskrift sem ég gróf upp... enjoy;*



2,5 dl vatn
50 g smjörlíki
salt á hnífsoddi
175 g hveiti
4-6 egg
2 tsk. lyftiduft

Vatn, smjörlíki og salt soðið. Tekið af hellunni þegar sýður og hveitið hrært út í. Sett á helluna aftur og hrært vel í mínútu.Þá er deigið sett í skál og látið kólna. Svo eru eggin, eitt og eitt í senn, hrærð saman við þar til deigið er hæfilega þykkt. Þá er lyftiduftið sett út í.Sett á hveitistráða plötu með skeið eða sprautupoka.Bakað við 180°C í ca. 30 mín. Fyrstu 20 mínúturnar má EKKI opna ofninn, því þá falla bollurnar.

Kv.Sandra bakari;)

February 15, 2007

15 Febrúar 2007

Fjöldi kærasta: 0
Fjöldi barna: 1
Fjöldi barna á leiðinni: 1 (grín:))
Fjöldi ökuprófa náð: 1 :)
Fjöldi sígaretta: 0
Fjöldi kynlífs: 0
Fjöldi af hamingju: 100% :)


Eins og þið sjáið þá er bara allt að gerast:) svo loksins er ég að fara byrja vinna á mánudaginn... í fyrst skipti í 9 mánuði:/ en mig hlakkar bara til. Svo er stelpan að fara reyna kaupa sér bíl núna í febrúar (vonandi)

svo ætla ég að skella hérna inn á smá mömmu stuffi þar sem ég er nú einu sinni mom :/

Það sem mamma mundi aldrei segja...

"Vertu nú góður strákur og ég skal kaupa mótorhjól handa þér í afmælisgjöf!"
"Hvernig sérðu á sjónvarpið þegar þú situr svona langt í burtu?"
"Vertu ekkert að klæða þig í jakka. Það er svaka fínt veður."
"Leyfðu mér að þefa af þessum bol.... já, já, þú getur verið í honum í viku í viðbót."
"Mér finnst draslaralegt herbergi bara vera merki um framkvæmdagleði."
"Já, ég skrópaði nú líka stundum."
"Skildu bara eftir öll ljós í gangi. Það gerir húsið bara hlýlegra."
"Nennirðu að hækka aðeins í græjunum. Ég er alvega að fíla þetta.?"(ég persónulega myndi alveg seigja þetta hehe:))
"Hlauptu og náðu í skærin fyrir mig! Flýttu þér!"
"Iss, snúðu nærbuxunum bara við. Það fattar það enginn."
"Ég er ekki með snýtubréf. Notaðu bara ermina á nýju peysunni þinni."
"Nú, ef mömmu hans Tomma er sama, þá er mér alveg sama."
"Auðvitað máttu hjóla í skólann." (Why not;) hehe)
"Ég verð á fundi langt fram eftir. Er ykkur ekki sama þó að þið pantið bara pítsu?

February 10, 2007

Aloha...

Stelpan skellti sér á Sander Kleinenberger í gær og það var ekkert lítið um að vera þar... maður komst varla fyrir á staðnum nema draga inn magann og troða sér... En Sander er bara hel***i góður DJ:) Ekki ástæðulaust að hann sé einn vinsælasti og besti DJ í heimi!!
Já svo STÓR frétt !!Bandaríska leikkonan og fyrirsætan Anna Nicole Smith lést núna fyrir helgi (8 febrúar) í Hollywood á Flórída í Bandaríkjunum, 39 ára að aldri. Smith fannst meðvitundarlaus á hótelherbergi á Hard Rock hótelinu í Hollywood og var flutt á sjúkrahús þar sem hún var úrskurðuð látin. Ekki skemmtilegt þar sem hún eignaðist litla dóttir í fyrra:( sad!

En jæja aðeins hérna til að hressa okkur við eftir þessa sorgar frétt;)

Hvert er mökunarkall ljósku? vááá hvað ég er orðin drukkin:)

Hvert er mökunarkall brunette? Sérðu ljóskuna þarna? ég er búin að drekka jafn mikið og hún:)

Aula-húmor I know! ;* En svo verð ég bara að henda inn einni gamalli lummu, en A.T.H það sem stendur neðst það stendur enn!! ;)

Sex is:
like Nokia (connecting people)
like Nike (Just do it)
like Pepsi (ask for more)
like Coca Cola (Enjoy)
like me (too good to be true)

Egóið alveg í botni hjá mér þessa dagana;* held þetta sé bara orðið heldur nett blogg hjá mér þannig ég ætla bara að kveðja í bili... ekki gráta, þetta er allt í lagi... ég kem með annað blogg bráðlega aftur:)
Love;*
Sandra Bé

February 1, 2007

Rugl sem meikar sens...

Það lítur út fyrir það að allt sé að ganga upp hjá mér núna! allar stjörnuspár og allir draumar bara mmmm....LOVE YOU! Kanski maður ætti bara að fara og sækja um sem útibússtjóri í einhverjum banka fyrst allt gengur svona vel hehe:) djóóók! Já svo var hann Símon minn að byrja hjá dagmömmu í dag og ég loksins kemst út að vinna, komin með ...... upp í háls á að hanga bara heima og á kaffihúsum:/ Svo eru víst allir að velta fyrir sér hvernig á að taka Hróaskeldu þetta árið, og hvort maður eigi að láta sjá sig humm... kanski maður skelli sér bara út með systkynunum þar sem þau eru eitthvað virkilega mikið að pæla í þessu, sem yrði þá heldur betur skrautleg ferð;)

Svo verð ég bara að koma með eitt "komment" hérna um "koktaila" og nöfnin á þeim:) Rakst t.d. á einn hérna sem heitir after sex sem er fáranlega fyndið nafn á koktail.... kemur kanski gaur að bjóða manni í glas: ,,Má bjóða þér eitthvað að drekka" og þá segir hún ,, Já takk.... after sex" gæti orðið smá misskilningur hér á ferð, við þekkjum flestar íslenska karlmenn, ef þeir heyra orðið "sex" eða ég ætla heim þá verður allt vitlaust...:)

Kv. Sandra Bé