December 31, 2006

Happy New Year!

Ég ætla að nota tækifærið áður en allt verður brjálað hérna á eftir og óska öllum gleði og farsældar á nýju ári (2007):* Hafið það sem allra best í kvöld og njótið þess að leyfa nýju ári að byrja vel:)

Happy New YearHat 2


Happy New Year

December 29, 2006

Good and bad year...

Erum við að tala um sálina um áramótin? jáá held það bara, skella sér á Broadway, kíkja á stemmninguna og hoppa með sálinni:) Annars verður alveg HÖRKU djamm á gamlárs;) Fór með henni Sylvíu litlu út í dag og við kíktum aðeins í party shop:) og ég keypti mér hreint snilldar glös (sjálýsandi rauð koktail glös) Svo á bara eftir að fara í ríkið og kaupa sér eina hvítvín og bjór:) svo má nú ekki vanta freyðivín sem er alveg must um áramótin þó mér finnist það nú ekkert spes:) þetta verður svakalegt...

En endilega látið heyra í ykkur og hvað þið ætlið að gera á áramótunum;) Verið annars stillt og prúð annars kemur áramótahesturinn og tekur ykkur:) tjá,tjá:* Sandra Bé;)

December 28, 2006

Have a Nice Day


Aló... jæja þá er maður orðin 120 kíló eftir jólin:) ég er einmitt rosalega glöð með það, þurfti nefninlega að fara bæta á mig... jólin hjá mér voru hreint yndi:) fékk heilan helling af gjöfum og nóg að borða. Svo var hann litli minn skírður á jóladag og fékk litli engillinn nafnið Símon, meðal annars þá voru skírð 3 börn til viðbótar í veislunni þar á meðal litla frænka mín:) það var rosa stuð... En fyrst það er einhver svaka veisla hér í kvöld á bæ (ætli maður nái sér ekki upp í 125 kílóin þá:)) þá ætla ég að fara aðstoða hana móðir mína við matinn! Ætlaði að láta inn myndir úr veislunni þar sem Símon var skírður en ég bara finn ekki tengið til að láta myndirnar úr vélinni yfir í tölvuna :S þannig þið fáið að sjá þær seinna:) Njótið þess að vera til og verið góð við kærustuna/kærastann ykkar :D Heyrumst:*
Kv. Sandra:)

December 23, 2006

Gleðileg jól :*


Ég er farin að halda að það sé eitthvað mikið í gangi í mínu lífi núna... þvílíka steypan sem mig er að dreyma! En hvað um það, það er víst Þorláksmessa í dag og allir heima hjá sér að borða skötu, sem að mér finnst ógeðsleg! skil ekki hvernig hægt er að borða þetta hvað þá með þorramat úff... Svo er víst allt klappað og klárt fyrir jólin, jólatréð komið á sinn stað og svona :) svo er bara eftir að klára að pakka inn gjöfunum sem ég er alger "snillingur" í :) svo henntist ég aðeins í kringluna áðan með Marinó og Ásdísi en það var eitthvað stutt stop afþví Marinó var farin að sjá svo fullt af skrítnu fólki hehe:) hann er náttúrulega ekki búin að sofa í sólarhring... En ég ætla að segja þetta gott núna ætla að reyna fara pakka inn einhverjum gjöfum:) En fyrir ykkur sem ég mun ekki sjá núna fyrir jól þá segi ég bara gleðileg jól og hafið það sem allra best núna um jólin:*
>Sandra<

December 20, 2006

Live.is

Þá er litli kútur loksins búin að fara í klippingu og þar á meðal ég:) litaði hárið á mér aðeins í dekkri kantinum og það kemur nú bara þokkalega út... Svo eru jólin bara að fara ganga í garð, ekki nema 3 dagar til:) En ég og systir mín verðum hjá dady á aðfangadag, rosa stuð! var einmitt að tala við pabba og hann sagði að við fengum eitthvað rosalega gott að borða en ég man ekki hvað það var:S afþví ég legg ekkert á minnið nema KJAFTASÖGUR! En hvað um það maður er loksins búin að klára jólagjafakaupin eða nei nú lýg ég, á eina gjöf eftir:S en ég redda henni á morgun:) svo er ég að fara hitta prestinn sem á að skíra litla prins á morgun hann vildi víst hitta mig áður en hann skírir, sem er skiljanlegt:) og svo er ég einnig að fara með kút í ungbarna eftirlit á morgun, vona að það komi allt vel út þar... en jæja ég ætla fara halla mér svo ég verði nú ekki eins og api á morgun:) Góða nótt:*

Sandra***

December 14, 2006

Komment!

Ég hef allt líf mitt leitað að þér
leitað og spurt, sértu þar eða hér
því ég trúði að til værir þú
trúði og ég á þig nú

Loksins ég fann þig
líka þú sást mig
ljóminn úr brúnu augunum skein
haltu mér fast, í hjarta þér veistu að hjá mér er aðeins þú ein.

Hver kannast ekki við þetta gullfallega lag frá þeim félögum í Á móti sól eða með Bo... þetta lag getur vel komið manni til þess að gráta ef maður er í ástarsorg, þannig ef þú ert í ástarsorg hlustaðu þá á lagið og þá geturu grátið meira:)
En hvað um það... ég er búin að vera sitja hérna með "fjölskyldunni" (kidda og mömmu:p) í laufabrauðsgerð í kvöld, rosa kósí og gaman:)....laufabrauð og frostrósirnar klikkar ekki á því að koma manni í smá jólafíling;) svo langaði mig geðveikt til þess að segja ykkur að litli engill er að fá fimmtu og sjöttu tönnina:)
En já! í lokinn þá ætla ég að setja inn myndir af litlu systrum mínum:)

>sandra<

Júlen:*

Jæja litla fólk... þá eru bara 10 dagar til jóla og ég á eftir að kaupa ALLAR jólagjafirnar :S en það gerir lítið til, við reddum þessu um helgina:) þ.e.a.s ef Sylvía klikkhaus dregur mann ekki á "jóladjammið" :) En loksins gat ég komið einhverjum myndum inn á tölvuna úr myndavélinni og ætla að láta tvær litlar jólamyndir af litlu elskunni minni :D



Hann er náttúrulega BARA sætur;)

En jæja! ætla drífa mig út og reyna tékka eitthvað á þessum jólagjöfum :)

Ciao, Ciao:*

December 13, 2006

fokk yee!!....

Erum við að tala um flott undirföt eða erum við að tala um sexy undirföt? við erum náttúrulega að tala um allan pakkann sem er nýja GEÐVEIKA undirfatalínan frá Victoriu Secret:) og undirfatasýningin var sko ekki síðri... Justin klikkar náttúrulega aldrei;) En hvað um það... ég er loksins búin að finna dag og tíma til að skíra litla engil og verður hann skírður á jóladag :D gaman og gott það... svo var ég rosalega dugleg að baka í dag þangað til að Sylvía kreisí hringir í mig og platar mig um að koma út í búðir... OMG ég er að verða geðveik á búðarölti!! þetta er það eina sem ég hef verið að gera núna upp á síðkastið :S Enn tékkiði á undirfötunum frá VS;)

December 12, 2006

Queer Eye hvað?

Varð bara að henda hérna inn á stjörnuspá sem ég fékk í dag:)
Sumir líta á ástina sem leik, aðrir sjá hana fyrir sér sem dans. Í augum meyjunnar hefur hún verið eins og jafna sem þarf að reikna. Ef fyrsta svarið er rangt bíða þúsund aðrar lausnir á listanum.
En já annars lítið að gerast hjá mér, er að reyna fokkast til að taka þetta bílpróf! maður er náttúrulega bara nörd... Svo var hörku stuð hjá mér og stelpunum um helgina... kíktum á lífið í keflavík og það var svona upp og niður, eins og vanalega ekkert að gerast þar enda fór ég snemma heim, tvö - hálf þrjú pfff ...ekkert að standa mig á djamminu núna, svo skildist mér að djammið hafi allt byrjað eftir að ég fór hehe:) það var náttúrulega bara afþví ég fór:):)
Skemmtilegt ekki satt:) Og þar sem ég ætla að enda enn eitt blogg tuðið hjá mér þá ákvað ég að setja mynd af yndislegu systir minn Ásdísi með nýja drauma kærastanum hennar Marinó:)
>--Sandra--<

December 8, 2006

Angel in hell;)


Já margir segja að ég sé engill sem lent hefur í helvíti! gaman af því... En já þar sem ég var hálfpartin farin að skammast mín fyrir það að vera ekki komin með neitt nafn á drenginn minn þá er það loksins komið og kemur nafnið fram í skírninni þannig þið þurfið að bíða! sorry:)

En ég ákvað að skella hérna inn smá "kjaftæði" um óléttuna og fleira a.t.h það sem er innan svigans er þó satt!:)

*Stelpa getur ekki orðið ólétt í fyrsta sinn sem hún sefur hjá. (Stelpur geta raunar orðið óléttar án þess að hafa nokkurn tíma farið á túr!)

*Stelpa getur orðið ólétt í sundi. (Þó að litlu mennirnir séu einstaklega góðir sundmenn þá ná þeir nú ekki að synda langar vegalengdir utan líkamans. Hins vegar getur stelpa vel orðið ólétt ef hún hefur samfarir í sundlaug.)

*Maður getur fengið kynsjúkdóma af klósettum (Afar, afar ólíklegt ef ekki útilokað. Maður getur hins vegar fengið kynsjúkdóma á klósettum, en það er annað mál...)

*Stelpa getur ekki orðið ólétt ef hún sefur hjá á meðan hún er á túr. (Nibb, sorry. Það er nefnilega ekki satt og að sjálfsögðu smitast kynsjúkdómar óháð því hvort Rósa frænka er í heimsókn eða ekki. Smokkurinn hefur því 3 kosti í þessarri stöðu: hindrar getnað, ver gegn sjúkdómum og heldur tippinu hreinu...)

*Smokkurinn eyðileggur alla tilfinningu og strákurinn er miklu lengur að fá það. (Bíddu, hvenær varð það vandamál að strákar væru of lengi að fá það...? Smokkurinn minnkar að vísu tilfiningu, enda sumir markaðsettir sem slíkir, en þeir hafa ekki marktæk áhrif á lengd samfara.)

*Það að nota smokk er eins og að fara í stígvélum í fótabað. (Uuuu...nei. Það er miklu líkara því að vera í vöðlum í laxveiði, sérstaklega ef það geta verið píranafiskar í vatninu...)

Líf eða hvað?

Jæja þá er koktail síðan mín loksins opnuð... :) Allir rosalega glaðir með það :D Ætli það verði ekki eitthvað um koktaila um helgina þar sem sum málefni í mínu lífi fara hring eftir hring og maður verður væntanlega ringlaður:S en hvað um það... það er eitt ótrúlegt í sambandi við mína drauma og stjörnuspár og það er að núna upp á síðkastið hafa mínir draumar og stjörnuspár sagt nákvæmlega til um það hvað er að gerast hjá mér, tala nú ekki um stjörnuspána! það er eins og hún hafi verið skrifuð fyrir mig! Svo er maður ekki búin að vera gera neitt nema hanga í kringlunni og á kaffihúsum og reyna að finna einhverjar jólagjafir! vona innilega að ég fari nú að finna einhverjar í bráð:)
Hlakka til að hitta ykkur elskurnar mína á laugardaginn:*
Love,love,love*** sandra