
Aló... jæja þá er maður orðin 120 kíló eftir jólin:) ég er einmitt rosalega glöð með það, þurfti nefninlega að fara bæta á mig... jólin hjá mér voru hreint yndi:) fékk heilan helling af gjöfum og nóg að borða. Svo var hann litli minn skírður á jóladag og fékk litli engillinn nafnið Símon, meðal annars þá voru skírð 3 börn til viðbótar í veislunni þar á meðal litla frænka mín:) það var rosa stuð... En fyrst það er einhver svaka veisla hér í kvöld á bæ (ætli maður nái sér ekki upp í 125 kílóin þá:)) þá ætla ég að fara aðstoða hana móðir mína við matinn! Ætlaði að láta inn myndir úr veislunni þar sem Símon var skírður en ég bara finn ekki tengið til að láta myndirnar úr vélinni yfir í tölvuna :S þannig þið fáið að sjá þær seinna:) Njótið þess að vera til og verið góð við kærustuna/kærastann ykkar :D Heyrumst:*
Kv. Sandra:)
No comments:
Post a Comment