Jæja litla fólk... þá eru bara 10 dagar til jóla og ég á eftir að kaupa ALLAR jólagjafirnar :S en það gerir lítið til, við reddum þessu um helgina:) þ.e.a.s ef Sylvía klikkhaus dregur mann ekki á "jóladjammið" :) En loksins gat ég komið einhverjum myndum inn á tölvuna úr myndavélinni og ætla að láta tvær litlar jólamyndir af litlu elskunni minni :D
Hann er náttúrulega BARA sætur;)
En jæja! ætla drífa mig út og reyna tékka eitthvað á þessum jólagjöfum :)
Sandra heiti ég og er 19 ára gömul. Ég á einn lítinn engil sem heitir Símon sem fæddist 17 maí 2006. Ég stefni að því núna á næstunni að klára skólan og verða stúdent:)3 orð sem lýsa mér best eru: klikkuð, pirrandi og skemmtileg:)ég vill fá hamingju út úr lífinu og ást er eitthvað sem maður getur ekki verið án. Mín helstu "Mottó" er að lifa lífinu lifandi og lífið er of stutt til að vera feimin;)
2 comments:
Mikið svakalega er litli kútur fallegt barn... risaknús til hans frá afa og ömmu í Kefló.
Mikið svakalega er litli kútur fallegt barn... risaknús til hans frá afa og ömmu í Kefló.
Post a Comment