Fjöldi kærasta: 0Fjöldi barna: 1
Fjöldi barna á leiðinni: 1 (grín:))
Fjöldi ökuprófa náð: 1 :)
Fjöldi sígaretta: 0
Fjöldi kynlífs: 0
Fjöldi af hamingju: 100% :)
Eins og þið sjáið þá er bara allt að gerast:) svo loksins er ég að fara byrja vinna á mánudaginn... í fyrst skipti í 9 mánuði:/ en mig hlakkar bara til. Svo er stelpan að fara reyna kaupa sér bíl núna í febrúar (vonandi)
svo ætla ég að skella hérna inn á smá mömmu stuffi þar sem ég er nú einu sinni mom :/
Það sem mamma mundi aldrei segja...
"Vertu nú góður strákur og ég skal kaupa mótorhjól handa þér í afmælisgjöf!"
"Hvernig sérðu á sjónvarpið þegar þú situr svona langt í burtu?"
"Vertu ekkert að klæða þig í jakka. Það er svaka fínt veður."
"Leyfðu mér að þefa af þessum bol.... já, já, þú getur verið í honum í viku í viðbót."
"Mér finnst draslaralegt herbergi bara vera merki um framkvæmdagleði."
"Já, ég skrópaði nú líka stundum."
"Skildu bara eftir öll ljós í gangi. Það gerir húsið bara hlýlegra."
"Nennirðu að hækka aðeins í græjunum. Ég er alvega að fíla þetta.?"(ég persónulega myndi alveg seigja þetta hehe:))
"Hlauptu og náðu í skærin fyrir mig! Flýttu þér!"
"Iss, snúðu nærbuxunum bara við. Það fattar það enginn."
"Ég er ekki með snýtubréf. Notaðu bara ermina á nýju peysunni þinni."
"Nú, ef mömmu hans Tomma er sama, þá er mér alveg sama."
"Auðvitað máttu hjóla í skólann." (Why not;) hehe)
"Ég verð á fundi langt fram eftir. Er ykkur ekki sama þó að þið pantið bara pítsu?
No comments:
Post a Comment