February 1, 2007

Rugl sem meikar sens...

Það lítur út fyrir það að allt sé að ganga upp hjá mér núna! allar stjörnuspár og allir draumar bara mmmm....LOVE YOU! Kanski maður ætti bara að fara og sækja um sem útibússtjóri í einhverjum banka fyrst allt gengur svona vel hehe:) djóóók! Já svo var hann Símon minn að byrja hjá dagmömmu í dag og ég loksins kemst út að vinna, komin með ...... upp í háls á að hanga bara heima og á kaffihúsum:/ Svo eru víst allir að velta fyrir sér hvernig á að taka Hróaskeldu þetta árið, og hvort maður eigi að láta sjá sig humm... kanski maður skelli sér bara út með systkynunum þar sem þau eru eitthvað virkilega mikið að pæla í þessu, sem yrði þá heldur betur skrautleg ferð;)

Svo verð ég bara að koma með eitt "komment" hérna um "koktaila" og nöfnin á þeim:) Rakst t.d. á einn hérna sem heitir after sex sem er fáranlega fyndið nafn á koktail.... kemur kanski gaur að bjóða manni í glas: ,,Má bjóða þér eitthvað að drekka" og þá segir hún ,, Já takk.... after sex" gæti orðið smá misskilningur hér á ferð, við þekkjum flestar íslenska karlmenn, ef þeir heyra orðið "sex" eða ég ætla heim þá verður allt vitlaust...:)

Kv. Sandra Bé

2 comments:

Anonymous said...

hey djöfull líst mér vel á systkinaferðina :P...ég held að það sé málið að við skellum okur á hróaskeldu :P..
díí það yrði klikkkkað ;)..hehe..
tek marinó með þannig hann og haukur geta verið saman og við 2 ;)...magnað :P..

Sandra said...

Já er það ekki bara málið:) það gæti orðið frekar nett klikkuð ferð:P haukur og marinó? humm.... hehe:)