April 19, 2007

Gleðilegt sumar:)


Þá er loksins komið sumar! æðislegt:) en það fóru víst flestir út á lífið í gær en litla stelpan var bara heima í kósíheitum:) en já svo er nú mikið búið að gerast frá því gellan bloggaði seinast! það vildi svo skemmtilega til að það var allt í ljósum logum í miðbænum í gær, rosa stemmari þar en þar fóru víst tvö hús mjög illa úr bruna og allir heima grátandi núna afþví þau voru byggð 17....18 hundruð eitthvað :,( og ekki nóg með! það spratt einnig upp einn góður heitapottur í miðbænum í gær... eins og ég er að segja, það var ALLT að gerast í bænum í gær!:/ en bara gaman af því... það gerist víst margt óvænt á lífsleiðinni:)




En það er nú frábært að vera til og sumarið loksins komið... hafið það geggjað í sumar og við sjáumst á roskilde;)

Svo verð ég bara enda þetta á einni flottri mynd;)

LoveSandra litla:*

No comments: