
Ég er farin að halda að það sé eitthvað mikið í gangi í mínu lífi núna... þvílíka steypan sem mig er að dreyma! En hvað um það, það er víst Þorláksmessa í dag og allir heima hjá sér að borða skötu, sem að mér finnst ógeðsleg! skil ekki hvernig hægt er að borða þetta hvað þá með þorramat úff... Svo er víst allt klappað og klárt fyrir jólin, jólatréð komið á sinn stað og svona :) svo er bara eftir að klára að pakka inn gjöfunum sem ég er alger "snillingur" í :) svo henntist ég aðeins í kringluna áðan með Marinó og Ásdísi en það var eitthvað stutt stop afþví Marinó var farin að sjá svo fullt af skrítnu fólki hehe:) hann er náttúrulega ekki búin að sofa í sólarhring... En ég ætla að segja þetta gott núna ætla að reyna fara pakka inn einhverjum gjöfum:) En fyrir ykkur sem ég mun ekki sjá núna fyrir jól þá segi ég bara gleðileg jól og hafið það sem allra best núna um jólin:*
>Sandra<
1 comment:
Gleðileg jól elsku litli afa og ömmustrákur, Guð vaki yfir þér og gefi þér bjarta framtíð. Við sjáumst hress á nýju ári og þá færðu að opna alla pakkana þína hjá pabba þínum fyrst mamma þín vill ekki leyfa þér að fá pakkana. Risaknús til þín elsku litli kútur. Kveðja, afi og amma í Kef.
Post a Comment