Jæja ef ég er rétt tímastillt þá mun vera konudagurinn í dag:) bolludagurinn á morgun og öskudagurinn á miðvikudaginn... gaman, gaman;) En í tilefni af konudeginum þá bíst ég við því að allir karmenn séu heima að baka bollur fyrir morgundaginn;) Svo var bara tekið því rólega um helgina... Vá! sem mun bara vera met hjá mér, ekkert djamm 4 helgar í röð :D maður er að taka sig á sko... þannig ég mun mæta hress og glöð til vinnu á morgun:)
En svo fyrir þá þ.e.a.s. sem fara ekki útí búð að kaupa bollur... þá er ég með eina uppskrift sem ég gróf upp... enjoy;*
En svo fyrir þá þ.e.a.s. sem fara ekki útí búð að kaupa bollur... þá er ég með eina uppskrift sem ég gróf upp... enjoy;*

2,5 dl vatn
50 g smjörlíki
salt á hnífsoddi
175 g hveiti
4-6 egg
2 tsk. lyftiduft
Vatn, smjörlíki og salt soðið. Tekið af hellunni þegar sýður og hveitið hrært út í. Sett á helluna aftur og hrært vel í mínútu.Þá er deigið sett í skál og látið kólna. Svo eru eggin, eitt og eitt í senn, hrærð saman við þar til deigið er hæfilega þykkt. Þá er lyftiduftið sett út í.Sett á hveitistráða plötu með skeið eða sprautupoka.Bakað við 180°C í ca. 30 mín. Fyrstu 20 mínúturnar má EKKI opna ofninn, því þá falla bollurnar.
Kv.Sandra bakari;)
2 comments:
sælar :D...frábær uppskrift hjá þér;)....en djöfusins kjaftæði þú ert ekki búin að ver edrú 4 helgar í röð hehe :P....en annas flott blogg sæta mín síjú ;**
Hver var að segja edrú haha:) nei djók... en jú eg hef ekkert djammað neitt núna 4 helgar geðveikt stolt:P en jájá það verður farið næstu helgi á stórsamkomu...;) sé þig babe:*
Post a Comment